(NP;The
Prayer/Bloc Party)
Komin tími á blogg?…… já
þokklega!
Eitthvað að frétta af mér, já
loksins eitthvað að gerast hahah! Ég og hún mamma gamla ætlum að
skella okkur til Fuerteventura eftir litla 9 daga og vera þar í
viku að worka tanið og versla 

Hótelið
*tilhlökkun*
En ennþá stærri fréttir eru
þær að ég er að fara í spænsku skóla á Spáni sem er dálítið
surrealíst því spænska og tungumál eru sko ekki mín besta hlið, en
hver veit kannski verð ég bara orðin helví*i góð í spænsku eftir
þennan mánuð þarna úti, ef ég get sett saman eina, tvær setningar
er það framför þannig ég þarf nú ekki mikið til að það verði
framför í spænskunni hjá mér þannig ég er vongóð.
En semsagt ég og Ragga ætlum
að fara saman til Spánar og verðum í háskólabænum Salamanca og
skólinn heitir Colegio Delibes.
Ég er búin að grafa það upp
að það er H&M þarna á 4 hæðum og sömuleiðis Zara á 4 hæðum
þannig ef ég get ekki neitt í spænskunni (sem
auðvitað gerist ekki) þá kem ég allavega með eitthvað af nýjum
fötum heim 
Það styttist í þetta rúmir tveir mánuðir obbobobb

Salamanca
er norðarlega rétthjá Madrid, semsagt ekki strand bær en við
hljótum að finna eitthvern poll til að kæla okkur í 

Salamanca

Kem öruggleg með
fleiri upplýsingar um Salamanca á næstunni 
En annars er ég bara
róleg þessa dagana búin að verg geggjað duglega að læra stærðfræði
í dag, loksins farain að mæta í ræktina og er bara alvegað meika
það þar og reyndar líka að meika það í að éta nammi en þá kemur
þetta bara út á sléttu æjjji markmiðið að hætta að éta nammi og
hana nú!!!
Það eina sem mig vantar
er að redda mér vinnu í sumar, Tinna er komin með vinnu í
húsasmiðjuni (gamla jobbið hennar Önnu híhí) eins og hún var að
segja í seinasta bloggi og Anna komin með vinnu á Fosshóteli
Vatnajökli en hún getur kannski sagt ykkur meira frá því ef hún
drullsat eitthvertíman til að blogga, það eina sem ég veit er að
þetta er langt frá Reykjvík og ég á eftir að sakna hennar mestast
.
Verð að hætta þessu
bloggveseni stærðfræðin kallar!
Árný
semerloksinsaðgeraeitthvaðspennandiviðlífsitt